FanBaze

Velkomin/n á FanBaze

05.03.2008 09:14:41 / Anomi

Nafnabreyting

Það vakti hjá mér mikla furðu þegar ég kom hingað inn aftur eftir margra mánaða stopp að heimsóknir fyrir daginn voru 80!!!! Hljóta að vera mannleg mistök :)

Nema hvað......Ef aftur á móti einhver slysast hingað inn þá má sá sem þetta les vita að ég er að breytast í Sólrúnarson á næstu dögum. Þetta er kannski ekki vettvangur til að ræða ástæður þessa breytinga, en ef einhver (það er úr vinahópi eða fjölskyldu) er forvitin/n þá á ég síma. En eins og áður sagði, þá er ég ekkert að eiga von að einhver sé að rata hingað þannig að kannski er ég bara að tala út í loftið :) Það er bara allt í lagi líka.

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 10:11:51 / Anomi

Norður skal haldið

Ég er sem sagt að fara norður með barnaskarann með mér að kíkja á hvernig norðlendingar hafa það. eftir því sem ég best veit þá hafa þeir það ágætt en það er betra að vera viss. Hef ekki farið norður síðan síðasta sumar og það getur nú hallað undan fæti á skemmri tíma en þeim tíma. Róm brann á einum degi, lög sem heimila vændi voru samþykkt á örskömmum tíma þannig að það getur allt gerst. Og talandi um það...ríkið vill ekki banna þeim sem vændi stunda að borga skatt af þeim tekjum...eðlilega. Þeir verða nú að fá tekjur af þessari atvinnugrein sem ætti nú að skila vel í kassann til þeirra, því ekki er þetta alveg ókeypis....skilst mér :D En nú erum við loksins að eignast alvöru borg eins og maðurinn sagði hér um árið þegar að glæpatíðni var stórum að aukast. Ekki að vændi sé glæpur....lengur. Magnað þetta þjóðfélag. Við rífum okkur ofan í rassgat yfir e/h klámráðstefnu og samþykkjum vændi daginn eftir. Öfugsnúið?? Nei er það nokkuð. Vændi er ekki klám er það?? Lærdómur dagsins er því, og það er gott fyrir börnin sem erfa landið að vita þetta, vændi er hvorki glæpur né klám heldur atvinnugrein em á eftir að skila vel til ríkissjóðs....ef það er talið fram það er.

Svona er nú lífið skemmtilegt.


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 13:35:47 / Anomi

Ég er.......

á lífi, fluttur, að koma mér fyrir, frískur, að vinna, rifbeinsbrotinn, óðum að límast saman, búinn að losa mig við froskana á myspace síðunni minni, svangur en allmennt hress bara!

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 14:00:41 / Anomi

Er á lífi

Jæja! Ástæða þess að ég hef ekki verið hér upp á síðkastið er bara sú að ég er ekki nettengdur heimafyrir og verð því að stóla á netmál í vinnuni. Er sem sagt að vinna núna og hef því tíma fyrir skrif. Það er marg búið að ganga á undanfarið. Ég er búinn að festa kaup á íbúð og flyt í hana 1 mars. það var mjög tvísýnt um tíma að það mundi ganga en með aðstoð góðs fólks eins og Sigrúnar og Steingríms, foreldra minna og Rósu fyrrum tengdó þá gekk þetta allt eftir. Ég er spenntur að fara að flytja, verð bara að viðurkenna það. Ætla að mála og eitthvað svoleiðiss, og gera aukaherbergi eða tvö fyrir Emmu og Aron. Langar að brjóta niður vegg sem skilur að eldhús og stofu til að stækka rímið en sjáum hvað setur. Kannski seinna. Það er eins og ég hafi nú bara gaman af því að flytja! Flutti inn í íbúðina í FM 12 3 jan og út aftur 1 mars eins og ég sagði áðan. Ég ætla nú að dvelja lengur en 2 mánuði í nýju íbúðinni (annars held ég að Heiða mundi ganga frá mér, eða að það mundi ganga frá henni :D því að hún og Svanlaugur voru mínir dyggustu og helstu aðstoðarmenn í flutningunum og verða það líklegast aftur. Guð blessi þau ríkulega) Það hefur verið mikið um veikindi hjá börnunum. Flensan ákvað að kíkja við í múlanum og leggjast á mann og mús. Allir eru nú að hressast nema Emma sem er að leggjast í flensuna. Man ekki meira...skrifa seinna.

Verið sæl að sinni


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 20:38:22 / Anomi

Hvíslararnir...

Það er nú alveg komin tími á að tjá sig. Það hefur eins og margir vita, margt gerst á stuttum tíma. Við Sigrún skildum í lok júlí á síðasta ári og var það sameiginleg ákvörðun okkar beggja að leiðir mundu skilja. Hvíslaranir eru nú fljótir að vakna við svona fréttir og ef fréttin er ekki nógi bitastæð þá er nú um að gera að hafa hana svolítið meira djúsí. Það stóð ekki á að það fór að hvíslast milli tannana að Sigrún hefði nú haldið framhjá mér og því hefði nú orðið úr að við skildum. Miklu skemmtilegra að gjammsa á því en þeirri staðreynd að lífið væri að taka annari stefnu hjá okkur. Fyrir þá sem hafa áhuga á að laga til söguna (margir eiga nú örugglega eftir að halda samt áfram að hvísla, það er miklu skemmtilegra) þá var það aldrei staðan. Maðurinn sem Sigrún er í sambandi við kom til sögunnar eftir að við skildum. Þetta er góður maður sem stóð við bakið á henni á þessum erfiðu tímum. Þó að við höfum skilið í góðu þá er skilnaður ekkert grín og alveg heilmikið uppgjör við lífið sem maður lifði og eins fyrir mann persónulega. Og fyrir þá sem hugsa aumingja Hjörtur vissi bara ekki betur, þá er Sigrún einhver sú hreinskilnasta manneskja sem til er og hefði aldrei fyrir sitt litla líf getað gert svona og ekki sagt frá því. Þeir sem neita að trúa þessu verða að eiga það við sig, en þetta er sannleikur málsins. Og til ykkar hvíslarar þá eruð þið hvimleiðustu manneskjur á þessari jörð.

Lifið heil þið hin!


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 20:48:09 / Anomi

Allt að gerast

Jæja. Þá eru einhverjar fréttir af manni. Ég er kominn með íbúð og byrja að flytja í hana eftir helgi. Hún er nú ekki langt frá, eða í stigaganginum við hiðina í Fellsmúla 12. Það er hressandi bara.

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 13:08:31 / Anomi

Ef einhver skildi nú kíkja hingað enþá

Það er nú all langt síðan ég skrifa síðast. Hef bara ekki verið í stuði. Veit ekkert hvort ég verði í einhverju meira stuði núna. Ég er aðalega að koma á framfæri skilaboðum um að ég hef hugsað mér að bjóða fram hönd mína í að teikna tækifærismyndir fyrir afmæli eða einhvern annan mannfögnuð. Endilega látið þetta berast. Það eina sem ég þarf er mynd af viðkomandi og einhverjar upplýsingar um áhugasvið og karaktereinkenni. Svo vil ég gefa mér viku fyrir fögnuðinn til að gera myndina. Ég á eftir að pæla betur með verð enda ræðst það kannski af stærð verksins. Svo bara að vera dugleg að auglýsa ;)

Hafiði það sem best!


» 11 hafa sagt sína skoðun


Myndirnar mínar